Stórt snjóflóð féll á Flateyri Jón Júlíus Karlsson skrifar 28. desember 2013 19:49
Snjóflóðavarnagarðar á Vestfjörðum hafa sannað gildi sitt. Þetta segir útibússtjóri Snjóflóðaseturs á Ísafirði. Stórt snjóflóð féll á varnargarð fyrir ofan Flateyri yfir jólahátíðina. Veður er að mestu gengið niður á Vestfjörðum eftir hvassviðri undanfarna daga. Hættustigi vegna snjóflóða var aflétt á norðanverðum Vestfjörðum í dag en ennþá er óvissustig. Íbúar á Hrauni í Hnífsdal og Geirastöðum í Syðridal á Bolungarvík fengu að snúa til síns heima í dag eftir að hafa orðið frá að hverfa vegna snjóflóðahættu. Opnað var til Súðavíkur í dag og snjóflóðahætta á þeim slóðum minni. Snjóflóðaeftirlitsmenn unnu í dag við mælingar og kortlagningu. Fjöldi flóða féll á Vestfjörðum yfir jólahátíðina, það stærsta þó á Flateyri. Þar féll stórt snjóflóð á jóladag, á sama stað og flóðið sem féll árið 1995 er 20 létu lífið. Snjóflóðagarðar sönnuðu enn og aftur gildi sitt. „Garðurinn beindi því flóði út í sjó og síðan vitum við öðrum flóðum í Eyrarhlíð, Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð. Það hafa þónokkur flóð fallið í þessari hrinu,“ segir Harpa Grímsdóttir, útibússtjóri Snjóflóðaseturs Háskóla Íslands á Ísafirði.Þurfa sjaldnar að rýma byggð Harpa telur aldrei of varlega farið þegar snjóflóð séu annars vegar. Æ sjaldnar þurfi þó að rýma byggð vegna snjóflóðahættu eftir að snjóflóðavarnir voru efldar á Vestfjörðum. „Við teljum fullvíst að það hefði verið rýmt í Bolungavík strax fyrir jól og sennilega hefði verið rýming þar í gildi yfir alla jólahátíðina ef ekki væri fyrir þessa stóru og öflugu garða. Þetta gæti gilt um fleiri staði hér á norðanverðum Vestfjörðum,“ segir Harpa og bætir við: „Snjóflóðavarnargarðanir eru farnir að sanna gildi sitt, ekki aðeins með því að beina flóðum frá heldur einnig líka með því að draga úr þessum stórfelldu rýmingum í byggð.“ Unnið var að því að ryðja flugbrautina á Ísafirði í dag og lenti vél Flugfélags Íslands þar síðdegis. Það var í fyrsta sinn frá því 22. desember en ekki hefur verið flugfært síðustu daga vegna veðurs.
Mest lesið Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Um fimm þúsund börn glíma við offitu á Íslandi Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira