Dómari í bann fyrir umdeilda frammistöðu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. nóvember 2013 14:00 Heimavöllur CSKA Sofia í samnefndri höfuðborg í Búlgaríu. Nordicphotos/Getty
Búlgarska knattspyrnusambandið hefur sett einn fremsta dómara landsins, Svetoslav Todorov, í ótímabundið bann eftir frammistöðu hans í deildarleik um helgina. Reuters greinir frá. Todorov dæmdi viðureign Cherno More Varna og CSKA Sofia sem lauk með 2-1 heimasigri Cherno More. Bæði mörk heimamanna þóttu afar umdeild. „Samviska mín er hrein,“ sagði Todorov að leik loknum en Búlgarinn er einn af UEFA dómurum Búlgara. „Ég dæmdi miðað við það sem ég sá.“ Heimamenn skoruðu fyrra mark sitt úr aukaspyrnu þar sem leikmaður heimaliðsins henti sér í jörðina af litlu tilefni. Sá viðurkenndi óheiðarleika sinn í viðtali eftir leik. Þá skoruðu heimamenn sigurmarkið úr vítaspyrnu eftir litla snertingu. Gestirnir voru æfir yfir því að fá ekki vítaspyrnu í síðari hálfleik, fullkomlega löglegt mark var dæmt af auk þess sem leikmanni heimaliðsins var ekki refsað fyrir að slá til mótherja. Fór svo að þjálfara gestaliðsins var vísað upp í stúku fyrir mótmæli seint í leiknum. Ekki liggur fyrir hve langt bann Todorov mun vara. Annar aðstoðardómaranna fékk hins vegar fimm leikja bann.
Fótbolti Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Handbolti EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Fleiri fréttir Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Sjá meira