Orka náttúrunnar tekur við rekstri virkjana OR Stefán Árni Pálsson skrifar 30. desember 2013 19:36 Hellsiheiðavirkjun verður nú rekinn undir Orku náttúrunnar. mynd / vilhelm
Nú um áramót tekur Orka náttúrunnar við rekstri virkjana Orkuveitu Reykjavíkur og allri raforkusölu en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Fyrirtækið mun vera opinbert hlutafélag alfarið í eigu Orkuveitunnar og er sett á fót til að uppfylla ákvæði raforkulaga um aðskilnað sérleyfis- og samkeppnistarfsemi. Viðskiptavinir Orku náttúrunnar eru um 75.000 talsins og eru viðskiptin misjafnlega umfangsmikil, allt frá heimilum til álvers. Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar verður Páll Erland. Veituþjónustan – vatnsveita, hitaveita, fráveita og dreifing rafmagnsins – verður áfram rekin undir merki Orkuveitu Reykjavíkur. Við aðskilnaðinn þurfti að breyta lögum um Orkuveitu Reykjavíkur. Ný lög voru samþykkt á Alþingi 19. desember síðastliðinn og endurspegla þau líka breyttar áherslur eigenda fyrirtækisins, stjórnar og stjórnenda; að leggja höfuðáherslu á hið hefðbundna hlutverk veitnanna. Orka náttúrunnar verður næststærsti raforkuframleiðandi á landinu og það sölufyrirtæki rafmagns sem hefur flesta viðskiptavini. Þær virkjanir sem Orka náttúrunnar á og rekur eru jarðvarmavirkjanirnar á Hellisheiði og á Nesjavöllum og tvær vatnsaflsvirkjanir; Andakílsárvirkjun og Elliðaárstöð. Í jarðvarmavirkjununum er jafnframt framleiddur rúmlega helmingur þess hitaveituvatns, sem nýttur er á Höfuðborgarsvæðinu. „Undirbúningur að uppskiptingu Orkuveitunnar hefur verið flókið og spennandi verkefni. Nú er komið að henni og það er áríðandi að markmið hennar um aukna samkeppni skili almenningi ábata,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í tilkynningunni. „Það hefur tekist að snúa mörgu til betri vegar hjá Orkuveitunni á undanförnum misserum, ekki síst fjárhag fyrirtækisins. Með skýrri stefnu, sem mótuð hefur verið í samstarfi eigenda, stjórnar, stjórnenda og starfsfólks, göngum við öruggari til allra okkar verka, þar á meðal þeirra sem uppskiptingunni fylgja.“ „Orkuveitan er þess vegna ágætlega í stakk búin að skilja að sérleyfis- og samkeppnihluta starfseminnar. Í aðskilnaðinum felast líka tækifæri og okkar Orkuveitufólks – þó sérstaklega starfsfólks Orku náttúrunnar – bíður að grípa þau, viðskiptavinum til hagsbóta.“
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Sjá meira