Ákvörðun um áfrýjun liggur ekki fyrir Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. febrúar 2013 20:30
Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir pilti á nítjánda ári, Dómald Degi Dómaldssyni, verði áfrýjað til Hæstaréttar. Hann var dæmdur í gær í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til að myrða fyrrverandi ástkonu föður síns á heimili hennar. Líkt og í máli gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem dæmdur var í Héraðsdómi Reykjavíkur og síðar í Hæstarétti fyrir árás á Skúla Sigurz, framkvæmdastjóra lagastoðar, var Dómald Dagur ákærður fyrir tilraun til manndráps á grundvelli 211. gr., sbr. 20. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Guðgeir var dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir brot sitt en Dómald Dagur í fimm ára fangelsi eins og fyrr segir. Dómald er mun yngri en Guðgeir, hann er fæddur 1994 og var sautján ára þegar brotið var framið síðasta vor. Guðgeir er aftur á móti fæddur 1977 og var 34 ára þegar hann framdi sitt í mars í fyrra. Báðir voru sakhæfir og höfðu ekki hlotið dóma áður. Það er ekkert í dómunum sjálfum sem útskýrir sérstaklega hversu mikill munur er á þeim refsingum sem ákveðnar voru. Guðgeir gekkst við broti sínu fyrir dómi en Dómald Dagur játaði brotið við skýrslutöku hjá lögreglu og við þingfestingu í Héraðsdómi Reykjaness en neitaði svo þegar hann gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins í dómi. Í dómsniðurstöðu yfir Dómald Degi segir að sannað þyki að hann hafi stungið konuna. Með hliðsjón af þeim áverkum sem konan sem hann réðst á bar „verður ekki önnur ályktun dregin en að minnsta kosti á verknaðarstundu hafi atlagan verið unninn af ásetningi til að verða brotaþola að bana," eins og segir orðrétt. Einkum með hliðsjón af fjölda áverka og staðsetningu þeirra. Árásin hafi verið hrottaleg og tilefnislaus. Í dómi Hæstaréttar í máli ákæruvaldsins gegn Guðgeiri Guðmundssyni segir að árásin hafi verið hrottaleg og lífshættuleg og leitt til varanlegs heilsutjóns brotaþola „og því að hending ein hafi ráðið að ekki hafi hlotist bani af," eins og segir í dómsniðurstöðunni. Fellst Hæstiréttur á það mat Héraðsdóms Reykjavíkur að Guðgeir hafi viljað að Skúli hlyti bana af atlögunni.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fleiri fréttir Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Sjá meira