Fótbolti

Zlatan í Meistaradeildargírnum í frönsku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zlatan Ibrahimović fagnar einu af þremur mörkum sínum í dag.
Zlatan Ibrahimović fagnar einu af þremur mörkum sínum í dag. Mynd/AP
Sænski landsliðsframherjinn Zlatan Ibrahimović skoraði öll þrjú mörk Paris Saint-Germain í 3-1 sigri á Nice í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. PSG er með fimm stiga forskot á toppnum eftir þennan góða heimasigur en Lille á leik inni seinna í kvöld.

Zlatan Ibrahimović var "bara" búinn að skora 5 mörk í fyrstu 11 leikjum sínum í deildinni og hefur verið meira í því að sýna snilli sína í Meistaradeildinni þar sem hann hefur skorað 7 mörk í aðeins fjórum leikjum,

Zlatan var hinsvegar í Meistaradeildarformi í leiknum í dag en hann skoraði mörkin sín á 39., 57. og 76. mínútu leiksins. Nemanja Pejčinović minnkaði muninn fyrir Nice í 2-1 á 70. mínútu.

Þetta er önnur þrenna Zlatan Ibrahimović í frönsku úrvalsdeildinni en hann skoraði þrennu í útisigri á Valenciennes í desember í fyrra. Zlatan hefur hinsvegar skorað átta tvennur í deildinni.

Zlatan Ibrahimović ætti því að mæta sjóðandi heitur inn í umspilsleiki Svía á móti Portúgal þar sem hann og Cristiano Ronaldo heyja mikið einvígi. Ronaldo skoraði einnig þrennu í sínum leik í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×