Fótbolti

Schalke í fýlu út í þýska sjónvarpsstöð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hvorki leikmenn né þjálfarar hjá þýska liðinu fóru í viðtöl við ZDF-sjónvarpsstöðina í Þýskalandi um helgina.

ZDF er önnur af tveimur stóru ríkisreknu sjónvarpsstöðvunum í Þýskalandi og hefur rétt til að sýna einn leik í Meistaradeild Evrópu í opinni dagskrá á miðvikudögum.

Ein umferð er eftir af riðlakeppni Meistaradeildarinnar og tvö þýsk lið að spila miðvikudaginn 11. desember - Schalke og Dortmund.

ZDF valdi fremur að sýna viðureign Dortmund gegn Marseille en leik Schalke gegn Basel. ZDF hefur þegar sýnt tvo leiki með Dortmund á miðvikudögum í vetur en engan með Schalke.

Forráðamenn íþróttadeildar ZDF segja að það sé meira í húfi hjá Dortmund en liðið má ekki við því að tapa ætli það sér að komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Arsenal og Napoli eigast við í hinum leik riðilsins.

Schalke er í harðri baráttu í C-riðli um sæti í 16-liða úrslitunum en sigur gegn Basel mun tryggja liðið áfram. Jafntefli eða tap þýðir að Schalke er úr leik.

Horst Heldt, framkvæmdarstjóri Schalke, segir að leikur liðsins gegn Basel sé mun athyglisverðari en leikur Dortmund.

„Dortmund er að spila við lið sem hefur ekki náð í stig í riðlinum,“ sagði Heldt.

ZDF er með íþróttaþátt á laugardagskvöldum þar sem leikirnir í þýsku úrvalsdeildinni eru gerðir upp. Schalke vann Stuttgart, 3-0, en ZDF fékk engin viðtöl við leikmenn.

„Okkur fannst það ekki nógu spennandi fyrir okkur að gefa kost á viðtölum. Þeir verða að láta sér viðtöl við tapliðið duga.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×