Fótbolti

Elvar Páll valinn í úrvalsliðið | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Strákarnir í AMU.
Strákarnir í AMU.
Elvar Páll Sigurðsson, Vignir Jóhannesson, Dagur Jónsson og Eyjólfur Eyjólfsson voru í silfurliði Auburn Montgomery í NCIA-deildinni sem lauk vestanhafs um helgina.

Elvar Páll tryggði liði sínu sæti í úrslitaleiknum á föstudagskvöldið á dramatískan hátt. Montgomery-liðið var manni færri í framlengingu gegn Lindsey Wilson-háskólanum sem þótti líklegt til að fara alla leið í keppninni. Elvar Páll skoraði sigurmarkið af miklu harðfylgi og fagnaðarlæti liðsfélaga sinna. Í bandaríska háskólaboltanum er notast við regluna með gullmark og því var mark Elvars Páls sigurmark og síðasta snerting leiksins.

AUM beið svo lægri hlut í úrslitaleiknum gegn Martin Methodist frá Tennessee daginn eftir. Úrslitin réðust einmitt á gullmarki í framlengingu. Elvar Páll var valinn í úrvalslið úrslitakeppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×