Erlent

14% kvenna yfir 65 ára í Bretlandi neyta áfengis fimm sinnum í viku

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ein af hverjum sjö konum á aldrinum 65 á yfir neytir áfengis fimm sinnum í viku.
Ein af hverjum sjö konum á aldrinum 65 á yfir neytir áfengis fimm sinnum í viku.
Ein af hverjum sjö konum, 65 ára og eldri, neytir áfengis fimm sinnum í viku ef marka má rannsókn sem gerð var í Bretlandi.

Það jafngildir 14% af öllum konum í aldursflokknum en í flokknum 16-24 ára neyta aðeins 2% kvenna áfengis fimm sinnum í viku.

Niðurstöður rannsóknarinnar gefa það sterklega til kynna að eldra fólk í Bretlandi eigi í auknu mæli við áfengisvandamál að stríða.

Fram kemur í rannsókninni að þeir sem eru á vinnumarkaðnum séu mun líklegri til að neyta áfengis en þeir sem eru atvinnulausir.

„Það er greinileg fylgni á aukinni áfengisneyslu og heilsufarsvanda hér í landi,“ sagði Elaine Hindal, framkvæmdastjóri Drinkaware, í fjölmiðlum í Bretlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×