Schalke í fýlu út í þýska sjónvarpsstöð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. desember 2013 17:30
Hvorki leikmenn né þjálfarar hjá þýska liðinu fóru í viðtöl við ZDF-sjónvarpsstöðina í Þýskalandi um helgina. ZDF er önnur af tveimur stóru ríkisreknu sjónvarpsstöðvunum í Þýskalandi og hefur rétt til að sýna einn leik í Meistaradeild Evrópu í opinni dagskrá á miðvikudögum. Ein umferð er eftir af riðlakeppni Meistaradeildarinnar og tvö þýsk lið að spila miðvikudaginn 11. desember - Schalke og Dortmund. ZDF valdi fremur að sýna viðureign Dortmund gegn Marseille en leik Schalke gegn Basel. ZDF hefur þegar sýnt tvo leiki með Dortmund á miðvikudögum í vetur en engan með Schalke. Forráðamenn íþróttadeildar ZDF segja að það sé meira í húfi hjá Dortmund en liðið má ekki við því að tapa ætli það sér að komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Arsenal og Napoli eigast við í hinum leik riðilsins. Schalke er í harðri baráttu í C-riðli um sæti í 16-liða úrslitunum en sigur gegn Basel mun tryggja liðið áfram. Jafntefli eða tap þýðir að Schalke er úr leik. Horst Heldt, framkvæmdarstjóri Schalke, segir að leikur liðsins gegn Basel sé mun athyglisverðari en leikur Dortmund. „Dortmund er að spila við lið sem hefur ekki náð í stig í riðlinum,“ sagði Heldt. ZDF er með íþróttaþátt á laugardagskvöldum þar sem leikirnir í þýsku úrvalsdeildinni eru gerðir upp. Schalke vann Stuttgart, 3-0, en ZDF fékk engin viðtöl við leikmenn. „Okkur fannst það ekki nógu spennandi fyrir okkur að gefa kost á viðtölum. Þeir verða að láta sér viðtöl við tapliðið duga.“
Enski boltinn Mest lesið Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Fótbolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti Fleiri fréttir Ronaldo gifti sig í fámenni Kristall Máni skoraði og fékk rautt í dramatískum Evrópusigri Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Eyddi samfélagsmiðlum sínum PSG kvartaði yfir of litlum búningsklefa fyrir Ofurbikarinn Valgeir hefur neitað ýmsum liðum í sumar Inter Milan gerir tilboð í Spence Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mæta kýpversku meisturunum í fyrstu Evrópuleikjunum „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Dómarastjóri UEFA um VAR: „Þetta er fótbolti, ekki PlayStation“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Mourinho hringdi í Ferguson og grét Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd „Mér líður frábærlega“ Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Strákarnir hans Sigga Ragga skóluðu Skála og eru áfram á toppnum Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Sjá meira