Markahetja Norður-Íra hættur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. desember 2013 18:15 Healy fagnar marki sínu gegn Aserbaídsjan í fyrra. Það reyndist hans síðasta landsliðsmark á ferlinum. Nordic Photos / Getty Imagess
Markahrókurinn David Healy hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir að hafa verið án félags síðan í sumar. Healy skoraði alls 36 mörk í 95 leikjum með norður-írska landsliðinu og er markahæsti leikmaður liðsins frá upphafi. Hann er 34 ára gamall og var síðast á mála hjá Bury. Hans helstu afrek með landsliðinu var að tryggja því 1-0 sigur á Englandi í undankeppni HM á Windsor Park árið 2005. Þá skoraði hann alls þrettán mörk í undankeppni EM 2008 sem er met í Evrópu. „Mér fannst markið gegn Englandi vera eins og hvert annað mark á sínum tíma. En fólk var enn að stöðva mig út á götu mörgum mánuðum síðar og spyrja mig út í markið,“ rifjar Healy upp. „Þá fann ég hversu heppinn og stoltur ég var af markinu. Svo í næstu undankeppni fór einfaldlega allt inn hjá mér.“ Healy hóf feril sinn hjá unglingaliði Manchester United en fór til Preston North End árið 2001 eftir aðeins þrjá leiki með aðalliði United. Healy spilaði fjórum sinnum gegn Íslandi á ferlinum og skoraði alls tvö mörk. Hann lék einnig með Leeds, Fulham, Sunderland, Ipswich, Doncaster, Rangers og Bury á ferlinum.
Enski boltinn Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Sjáðu myndirnar: Svíarnir gjörsigraðir á einu besta kvöldi strákanna okkar Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti „Svo kemur Ómar Ingi og fer að spila eins og Viggó“ Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö Handbolti Fleiri fréttir Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Sjá meira