Fótbolti

Helgi Valur í byrjunarliðinu í áttunda leiknum í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Valur Daníelsson.
Helgi Valur Daníelsson. Mynd/NordicPhotos/Getty
Helgi Valur Daníelsson spilaði allan leikinn með Belenenses þegar liðið gerði markalaust jafntefli í kvöld á útivelli á móti Vitória Guimaraes í portúgölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Þetta eru ekki slæm úrslit fyrir Belenenses enda var Vitória Guimaraes sex stigum og sjö sætum ofar í töflunni. Belenenses er núna í 13. sæti deildarinnar af 16 liðum.

Eggert Gunnþór Jónsson kom inná sem varamaður hjá Belenenses á 81. mínútu en þetta var fyrsti leikur Eggerts síðan að hann byrjaði í 2-0 sigri á Olhanense 5. október síðastliðinn.

Helgi Valur hefur verið í byrjunarliðinu í átta síðustu leikjum Belenenses og spilaði þá alla til enda nema einn.

Liðið hefur hinsvegar ekki unnið síðan 5. október en þetta var fjórða jafnteflið í síðustu fimm leikjum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×