Fótbolti

Aron og Jóhann Berg teknir af velli og AZ tapaði í lokin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Youness Mokhtar tryggði Twente-liðinu öll stigin.
Youness Mokhtar tryggði Twente-liðinu öll stigin. Mynd/NordicPhotos/Getty
AZ Alkmaar tapaði 1-2 á heimavelli á móti Twente í kvöld í mikilvægum leik í toppbaráttu hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Twente skoraði sigurmarkið á lokamínútu leiksins og er nú aðeins einu stigi á eftir toppliðunum.

AZ Alkmaar hefur aftur á móti tapað tveimur leikjum í röð og er nú sjö stigum á eftir toppliði Ajax.

Aron Jóhannsson og Jóhann Berg Guðmundsson voru báðir í byrjunarliði AZ Alkmaar í kvöld en þeir voru báðir farnir af velli þegar Youness Mokhtar tryggði Twente öll stigin. Jóhann Berg fór af velli á 76. mínútu og Aron þremur mínútum síðar.  

Roy Beerens kom AZ Alkmaar í 1-0 strax á þriðju mínútu leiksins en Youness Mokhtar, tveggja marka maður í kvöld, jafnaði metin á 39. mínútu. Þannig stóð staðan þar til að  Youness Mokhtar skoraði aftur á 90. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×