Fótbolti

Alfreð áfram með tveggja marka forskot á Pellè - Heerenveen tapaði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. Mynd/NordicPhotos/Getty
Alfreð Finnbogason og félagar í Heerenveen töpuðu 1-2 á heimavelli á móti Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni í dag og eru því áfram í áttunda sæti deildarinnar.

Alfreð náði ekki að skora í leiknum ekki frekar en Graziano Pellè hjá Feyenoord. Alfreð er því áfram með tveggja marka forskot á Pellè á listanum yfir markahæstu menn deildarinnar.

Heerenveen hefði farið upp í fimmta sæti deildarinnar með sigri. Feyenoord komst í 2-0 á fyrstu sextán mínútum leiksins með mörkum Jean-Paul Boëtius og Lex Immers en Heerenveen minnkaði muninn á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar varnarmaður Feyenoord skorðai sjálfsmark.

Alfreð Finnbogason fékk tvö mjög góð færi í seinni hálfleiknum en tókst ekki að skora. Í fyrra skiptið varði markvörður Feyenoord vel frá honum en í því síðasta þá skaut Alfreð framhjá eftir lagleg tilþrif í teignum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×