Fótbolti

Dagný fiskaði víti og lagði upp mark í öruggum sigri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Berglind og Dagný með verðlaun sín fyrir sigur í Atlantshafsdeildinni á dögunum.
Berglind og Dagný með verðlaun sín fyrir sigur í Atlantshafsdeildinni á dögunum. Mynd/Aðsend
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir komust í gærkvöldi í undanúrslit NCAA knattspyrnumótsins með liði Florida State háskólans eftir 4-0 sigur á Boston College.

Berglind og Dagný voru báðar í byrjunarliði heimaliðsins sem leiddi 1-0 í hálfleik. Liðið bætti við þremur mörkum í síðari hálfleik. Dagný fiskaði bæði vítaspyrnu og lagði upp annað mark Florida State.

Þetta er þriðja árið í röð sem liðið kemst í undanúrslit NCAA en undanfarin tvö ár hefur liðið tapað þar. Liðið mætir Virginia Tech á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×