Fótbolti

Enn syrtir í álinn hjá Sölva Geir og félögum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Arnþór
Sölvi Geir Ottesen var sem fyrr í byrjunarliði FC Ural sem steinlá í heimsókn sinni til Dinamo Moskvu í dag. Lokatölurnar urðu 3-0 heimaönnum í vil.

Íslenski landsliðsmaðurinn hefur verið í aðalhlutverki í varnarleik FC Ural undanfarnar vikur eftir að nokkurn tíma tók að stimpla sig inn. Liðið hefur aðeins fengið eitt stig úr síðustu þremur leikjum og er með 12 stig rétt fyrir ofan fallsætin.

Leikurinn var sá fyrsti í 18. umferðinni og því gæti farið svo að FC Ural yrði í fallsæti að umferðinni lokinni fari önnur úrslit á versta veg fyrir liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×