Fótbolti

Þrír létust í slysi við knattspyrnuleikvang í Brasilíu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kraninn við leikvanginn í Brasilíu.
Kraninn við leikvanginn í Brasilíu.
Byggingakrani hrundi við knattspyrnuleikvang í Sao Paulo í Brasilíu í dag með þeim afleiðingum að þrír létu lífið.

Reuters greinir frá þessu en leikvangurinn er í byggingu vegna HM í knattspyrnu sem fram fer í Suður-Ameríkulandinu næsta sumar.

Fulltrúar Corinthians og Odebrecht SA, knattspyrnuliðsins sem á leikvanginn og byggingaverktakinn, vilja ekki tjá sig um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×