Fótbolti

Króatar sektaðir fyrir kynþáttaníð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá viðureign Skota og Króata á dögunum.
Frá viðureign Skota og Króata á dögunum. Nordicphotos/Getty
Knattspyrnusamband Króatíu hefur fengið tvær sektir frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu vegna hegðunar stuðningsmanna karlalandsliðsins í síðustu tveimur leikjunum í undankeppninni.

Sambandið fékk um 5 milljóna sekt fyrir handbendingar áhorfenda að hætti nasista í heimaleik gegn Belgum. Þá var sambandið sektað um rúmar tvær milljónir fyrir slæma hegðun stuðningsmanna í útileik gegn Skotum.

Króatíska landsliðið er væntanlegt til Íslands en liðið mætir því íslenska á föstudagskvöldið. Um eitt þúsund stuðningsmenn Króata fylgja liðinu á Klakann.

Gríska, skoska og rúmenska knattspyrnusambandið fékk einnig sekt fyrir slæma hegðun áhorfenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×