Fótbolti

Elmar mótmælti og var rekinn af velli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Heimasíða Randers
Theódór Elmar Bjarnason og félagar í Randers steinlágu 4-1 á heimavelli gegn AaB í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Elmar fékk að líta gula spjaldið á 88. mínútu leiksins og var ekki par sáttur. Eftir mótmæli fékk hann annað gult og þar með rautt. Átta gul spjöld fóru á loft í leiknum auk þeirra tveggja sem Elmar fékk.

Randers hefur 18 stig í 8.-11. sæti deildarinnar og er í bullandi fallbaráttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×