Fótbolti

Rodgers: Henderson gat farið í sumar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jordan Henderson
Jordan Henderson nordicphotos/getty
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, er gríðarlega ánægður með þann baráttuhug sem Jordan Henderson hefur sýnt með liðinu á tímabilinu.

Henderson er í enska landsliðinu fyrir vináttulandsleikinn gegn Síle og Þjóðverjum á næstu dögum.

Rodgers hefur nú staðfest að tilboð hafi borist í leikmanninn frá öðrum úrvalsdeildarklúbb í sumar en Henderson ákvað að vera um kyrrt hjá Liverpool. Talið er líklegt að Fulham hafi boðið í leikmanninn.

„Við ræddum saman á sínum tíma þegar félagaskiptaglugginn var við það að lokast,“ sagði Rodgers.

„Ég lét hann vita af því að tilboð hefði borist í leikmanninn. Hann sagðist um leið vilja vera áfram hjá Liverpool og berjast fyrir byrjunarliðssætinu.“

„Hann hefur lagt sig gríðarlega mikið fram á þessu tímabili og fylgir ávallt öllum tilmælum frá mér. Þetta er draumaleikmaður til að vera með í sínum hóp.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×