Fótbolti

Guðni Bergs: Við látum alltaf í okkur heyra á landsleikjum

Guðni Bergsson og Rúnar Kristinsson segjast láta vel í sér heyra á landsleikjum í heiðursstúkunni á Laugardalsvelli.

Guðni og Rúnar eru gestir Kolbeins Tuma Daðasonar í Sportspjallinu þessa vikuna. Þeir félagar, sem samanlagt eiga 183 A-landsleiki að baki, tilheyra þeim hópi fyrrverandi leikmanna liðsins sem fá boðsmiða á völlinn.

Aðeins þeir leikmenn sem spilað hafa 50 landsleiki eða fleiri eiga miða vísan og fá að gæða sér á mat og drykk fyrir leik. En styðja þeir Guðni og Rúnar við strákana úr stúkunni? Svar þeirra er fróðlegt.

Sportspjallið í heild sinni er sýnt á Vísi klukkan 12 á hádegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×