Fótbolti

Spá því að Eduardo byrji gegn Íslandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Luka Modric er að sjálfsögðu í byrjunarliði Króata.
Luka Modric er að sjálfsögðu í byrjunarliði Króata. Mynd/Vilhelm
Króatískir fjölmiðlar eru byrjaðir að birta sínar spár um hverjir skipi byrjunarlið landsliðsins gegn Íslandi í kvöld.

Ríkisfjölmiðillinn HRT telur að Eduardo da Silva verði í sóknarlínu Króata ásamt Ivan Perisic og Ivo Ilicevic. Luka Modric er að sjálfsögðu á miðjunni og Mario Mandzukic fremstur.

Líklegt byrjunarlið Króata má sjá að neðan:

Markvörður: Stiple Pletikosa

Hægri bakvörður: Dario Srna

Miðvörður: Simunic

Miðvörður: Corluka

Vinstri bakvörður: Pranjic

Djúpir á miðju: Ivan Rakitic

Djúpir á miðju: Luka Modric

Hægri kantur: Eduardo da Silva

Vinstri kantur: Ivo Ilicevic

Fremstur á miðju: Ivan Perisic

Frammi: Mario Mandzukic




Fleiri fréttir

Sjá meira


×