Fótbolti

Engin ákvörðun tekin fyrr en á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kolbeinn í leiknum í gær.
Kolbeinn í leiknum í gær. Mynd/Vilhelm
Kolbeinn Sigþórsson á enn möguleika á því að fara út með íslenska landsliðinu til Króatíu á morgun.

„Hann verður skoðaður aftur í kvöld og endanlega ákvörðun um hvort hann fari með til Zagreb verður tekin í fyrramálið,“ sagði Ómar Smárason hjá KSÍ við Vísi í dag.

Kolbeinn fór í myndatöku í gær þar sem í ljós kom að hann væri ekki brotinn á ökkla eftir að hafa misstigið sig illa í jafnteflisleiknum gegn Króatíu í gær.

„Þetta er bara tognun og nú er bara spurning um hversu alvarleg hún er og hversu lengi hann verður að ná sér,“ sagði Ómar en Kolbeinn er nú í meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurum íslenska landsliðsins.

„Þetta er enn galopið allt saman,“ bætti Ómar við en síðari leikurinn gegn Króötum fer út ytra á þriðjudagskvöldið. Landsliðið leggur í för sína um miðjan dag á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×