Fótbolti

Góðan daginn Zagreb!

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Zagreb í morgunsárið.
Zagreb í morgunsárið. Mynd/Vilhelm
Dagur er upp runninn í Zagreb þar sem fátt bendir til þess að framundan sé leikur sem skipti heimamenn miklu máli.

Það er skýjað í króatísku höfuðborginni líkt og verið hefur undanfarna daga. Hiti er í kringum fimm gráður og lítill sem enginn vindur. Möguleiki er á lítilsháttar úrkomu í kvöld þegar flautað verður til leiks á Maksimir-leikvanginum.

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands, sagði á blaðamannafundi í gær að honum litist vel á völlinn sem leikið verður á í kvöld. Eðlilega sé grasið ekki iðagrænt á þessum tíma ársins en ekki yfir neinu að kvarta.

Flautað verður til leiks á Maksimir-leikvanginum klukkan 20.15 að staðartíma sem er 19.15 að íslenskum tíma. Bein texta- og útvarpslýsing Gumma Ben frá leiknum verður hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×