Fótbolti

Roy Keane verður aðstoðarmaður Martin O'Neill

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Martin O'Neill og Roy Keane.
Martin O'Neill og Roy Keane. Mynd/NordicPhotos/Getty
Martin O'Neill ætlar að fá Roy Keane til að vera aðstoðarmann sinn hjá írska landsliðinu samkvæmt enskum miðlum en fátt kemur nú veg fyrir að O'Neill verði landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu.

Hinn 42 ára gamli Roy Keane var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið í knattspyrnu en þessi fyrrum litríki leikmaður Manchester United, var áður knattspyrnustjóri Sunderland og Ipswich.

Roy Keane spilaði á sínum tíma 67 landsleiki fyrir Íra á árunum 1991 til 2005 og er sem stendur í 20. sæti yfir leikjahæstu leikmenn írska landsliðsins. Martin O'Neill var aftur á móti norður-írskur landsliðsmaður.

Næstu landsleikir Íra eru vináttulandsleikir við Lettland og Pólland sem fara fram á sama tíma og Ísland spilar umspilsleiki sína við Króata.

Martin O'Neill er 19 árum eldri en Roy Keane en jafnframt þrettán árum yngri en Ítalinn Giovanni Trapattoni sem þjálfaði írska landsliðið frá 2008 til 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×