Fótbolti

HM-ævintýri í eyðimörkinni hjá strákaliði Svía

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valmir Berisha fagnar sigurmarki sínu.
Valmir Berisha fagnar sigurmarki sínu. Mynd/NordicPhotos/Getty
Sænska 17 ára landsliðið í fótbolta hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína en liðið er komið í undanúrslit á HM U-17 í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þetta er í fyrsta sinn sem sautján ára knattspyrnulandslið Svía tekur þátt í úrslitakeppni HM.

Svíþjóð og Mexíkó eru komin áfram í undanúrslitin en það ræðst síðan í dag hvaða þjóðir tryggja sér hins sætin þegar Argentína og Fílabeinsströndin mætast annarsvegar og Úrúgvæ og Nígería hinsvegar.

Svíar unnu 2-1 sigur á Hondúras í leik sínum í átta liða úrslitunum en Mexíkóbúar slógu Brasilíumenn út eftir 11-10 sigur í vítakeppni.

Brayan Velásquez kom Hondúras í 1-0 í fyrri hálfleik en Svíar tryggðu sér sigurinn með mörkum frá Erdal Rakip (Malmö FF) og Valmir Berisha (Halmstads BK) í seinni hálfleik. Valmir Berisha skoraði sigurmarkið sextán mínútum fyrir leikslok með hælspyrnu sem landi hans Zlatan Ibrahimovic hefði verið stoltur af.

Svíar, sem slógu Japan út í 16 liða úrslitunum, mæta sigurvegaranum úr leik Úrúgvæ og Nígeríu í undanúrslitaleiknum sem fer fram 5. nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×