Fótbolti

Kolbeinn og félagar töpuðu á grátlegan hátt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kolbeinn Sigþórsson í leiknum í kvöld.
Kolbeinn Sigþórsson í leiknum í kvöld. Mynd/NordicPhotos/Getty
Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax töpuðu 0-1 í toppslag á móti Vitesse í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Kolbeinn Sigþórsson fékk nokkur færi í leiknum og það var aðeins frábær markvarsla Piet Velthuizen sem kom í veg fyrir að íslenski landsliðsframherjinn kæmi Ajax í 1-0 í lokin.

Eftir færi Kolbeins varði Velthuizen skalla frá Siem de Jong. Vitesse-menn brunuðu í skyndisókn og Valeri Qazaishvili skoraði markið sem á endanum tryggði liðinu öll þrjú stigin.

Lasse Schöne átti skot í stöng í uppbótartíma leiksins en Ajax tókst ekki að jafna og Vitesse fagnaði sigri og toppsætinu í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×