Fótbolti

Gylfi í liðinu og Tottenham lagði Sheriff

Tottenham er komið áfram í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar eftir fínan 2-1 sigur á FC Sheriff í kvöld.

Erik Lamela og Jermain Defoe skoruðu mörk Spurs í leiknum. Defoe varð þar með markahæsti leikmaður Tottenham frá upphafi í Evrópukeppnum.

Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Spurs en fór af velli á 69. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×