Zlatan í Meistaradeildargírnum í frönsku deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2013 18:52 Zlatan Ibrahimović fagnar einu af þremur mörkum sínum í dag. Mynd/AP
Sænski landsliðsframherjinn Zlatan Ibrahimović skoraði öll þrjú mörk Paris Saint-Germain í 3-1 sigri á Nice í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. PSG er með fimm stiga forskot á toppnum eftir þennan góða heimasigur en Lille á leik inni seinna í kvöld. Zlatan Ibrahimović var "bara" búinn að skora 5 mörk í fyrstu 11 leikjum sínum í deildinni og hefur verið meira í því að sýna snilli sína í Meistaradeildinni þar sem hann hefur skorað 7 mörk í aðeins fjórum leikjum, Zlatan var hinsvegar í Meistaradeildarformi í leiknum í dag en hann skoraði mörkin sín á 39., 57. og 76. mínútu leiksins. Nemanja Pejčinović minnkaði muninn fyrir Nice í 2-1 á 70. mínútu. Þetta er önnur þrenna Zlatan Ibrahimović í frönsku úrvalsdeildinni en hann skoraði þrennu í útisigri á Valenciennes í desember í fyrra. Zlatan hefur hinsvegar skorað átta tvennur í deildinni. Zlatan Ibrahimović ætti því að mæta sjóðandi heitur inn í umspilsleiki Svía á móti Portúgal þar sem hann og Cristiano Ronaldo heyja mikið einvígi. Ronaldo skoraði einnig þrennu í sínum leik í dag.
Fótbolti Mest lesið Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Fleiri fréttir Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Sjá meira