Fótbolti

Van Basten fékk bikarsigur frá Alfreð og félögum í afmælisgjöf

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Finnbogason og Marco van Basten.
Alfreð Finnbogason og Marco van Basten. Mynd/NordicPhotos/Getty
Heerenveen varð í kvöld fjórða Íslendingaliðið sem komst áfram í sextán liða úrslit hollenska bikarsins en Heerenveen vann þá 1-0 sigur á b-deildarliðinu VVV-Venlo.

Marco van Basten, þjálfari Heerenveen, heldur upp á 49 ára afmælið sitt og Alfreð Finnbogason og félögum hans í liðinu tókst að gefa þjálfara sínum sigur í afmælisgjöf.

Ajax, NEC Nijmegen og AZ Alkmaar höfðu öll komist áfram fyrr í vikunni. Kolbeinn Sigþórsson var þó sá eini íslenski leikmaðurinn sem náði að skora í þessum leikjum.

Heerenveen vann eins og áður sagði 1-0 heimasigur á VVV-Venlo á Abe Lenstra Stadion. Hollenski varnarmaðurinn Ramon Zomer skoraði eina mark leiksins á 22. mínútu.

Alfreð Finnbogason lék allan leikinn en náði ekki að skora ekki frekar en í deildarleiknum um síðustu helgi. Alfreð hafði skorað í fyrstu níu deildar- og bikarleikjum sínum fyrir þessa tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×