Stúdentar greiði fyrir niðurskurð háskólans Jón Júlíus Karlsson skrifar 22. október 2013 20:00 „
Stúdentar eiga að greiða fyrir niðurskurð Háskóla Íslands.“ Þetta segir formaður stúdentaráðs. Menntamálaráðherra segir að hækkun skrásetningagjalda auðvelda háskólanum að takast á við niðurskurð. Skrásetningagjald í Háskóla Íslands mun á næsta ári hafa hækkað um 67% á þremur árum. Þau voru hækkuð úr 45 í 60 þúsund krónur á síðasta ári og munu hækka í 75 þúsund krónur á næsta ári. Niðurskurður blasir við Háskóla Íslands sjötta árið í röð og eru stúdentar uggandi yfir því að skrásetningagjaldið sé notað til að brúa bilið í niðurskurði. María Rut Kristinsdóttir, formaður Stúdentaráðs, segir hækkun skrásetningagjalda, koma sér illa við stúdenta en verst sé þó að hækkunin muni ekki skila sér inn í háskólann. Stúdentar eigi að borga upp niðurskurð við skólann. „Staðreyndin er einfaldlega sú að samkvæmt reikningum þá eiga að koma u.þ.b. 140 milljónir inn í háskólann með hækkun skrásetningagjaldsins. Hins vegar munu aðeins um 39 milljónir skila sér inn í háskólann. Restin fer til þess að mæta niðurskurði á framlagi frá ríkissjóði,“ segir María Rut. Munu nemendur þá borga fyrir þann niðurskurð sem framundan er? „Mér sýnist það eiga að vera leiðin. Stúdentar eiga að greiða fyrir þetta. Maður veltir því fyrir sér hvort að skrásetningagjald sé orðið að skólagjaldi. Þjónustugjöld eiga að vera þannig að þau renni í þá þjónustu sem þau borga fyrir. Miðað við þetta þá er hækkun þessara gjalda ekki að fara að skila sér í betri þjónustu fyrir stúdenta,“ bætir María Rut við.Niðurstaðan hefði orðið sú sama Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir að ákvörðun um hækkun skrásetningagjaldsins sé tekin með hliðsjón af ráðgefandi upplýsingum frá háskólunum og í takt við vísitölu neysluverðs. „Ég tel það vera prinsipp ákvörðun að háskólarnir eigi að meta það hver innritunarkostnaðurinn er. Hvort sem að það hefði verið um að ræða niðurskurð eða aukningu á fjármagni til háskólans þá hefði niðurstaða mín orðið sú sama. Aðalatriðið er það að háskólinn getur aukið tekjur sínar og þarf ekki að nota framlag frá ríkinu til að greiða niður þennan þátt síns reksturs. Háskólinn fær inn þessa fjármuni og ríkið nær fram sínum aðhaldsmarkmiðum.“
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Fleiri fréttir Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjá meira