"Megrunarfæði á ekkert erindi til barna“ Elísabet Hall skrifar 22. október 2013 19:30
Stöð 2 greindi frá fyrr í vikunni að séróskum um mataræði leikskólabarna hafi fjölgað mikið en dæmi eru um að nokkrar máltíðir séu eldaðar svo að öll börnin á deildunum geti borðað í samræmi við sérþarfir sínar. Yfirleitt þegar óskað er eftir sér mataræði fyrir börnin er það vegna ofnæmis eða óþols á sérstakri matvöru og þurfa þá foreldrar að skila inn læknisvottorði þess efnis en einnig geta foreldrar óskað eftir sér mataræði vegna trúarástæðna. Nokkrir leikskólastjórar sem fréttastofa ræddu við í dag sögðu að nokkuð hafi færst hafi í aukana á síðustu árum að foreldrar biðji um sérstakan mat fyrir börn sín sem flokka megi sem lífsstílstengdan mat eins og til dæmis að maturinn þurfi að vera kolvetnalaus eða fitusnauður. Einnig séu dæmi um að óskað sé eftir einungis lífrænum eða óerfðabreyttum mat. Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur, segir slíka þróun geta verið varhugaverða og að megrunarfæði eigi ekkert erindi til lítilla barna. „Við vitum að það að alast upp í umhverfi þar sem er mikil áhersla lögð á megrun og holdarfar getur haft neikvæð áhrif á börn. Það eykur líkurnar á að þau þrói með sér neikvæða líkamsmynd þegar fram í sækir þannig að ég held að við ættum að vera mjög varkár varðandi alla svona áherslur og umræðu í kringum börn.“ Sigrún segir að auknar lífsstíls umræður í íslensku samfélag geti auðveldlega speglast inn í leikskólana. „Það þarf líka að hafa í huga að heilbrigði snýst ekki bara um líkamlegt hreysti. Heilbrigði er líka andleg heilsa og félagslegir þættir og þetta verður allt að koma saman í einhvers konar heildrænu tilliti þegar heilbrigði barna er annars vegar. Auðvitað hefur maður alltaf áhyggjur af því þegar það er nýtt og nýtt megrunaræði nær svona mikilli fótfestu eins og virðist alltaf gerast á Íslandi. Maður hefur áhyggjur af hvaða áhrif þetta hefur á börnin. Þau fari þá að hafa áhyggjur af mataræði sínu eða holdafari og það fer að hafa neikvæð áhrif á þeirra andlegu líðan.“
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Sjá meira