Drogba og félagar með annan fótinn á HM í Brasilíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2013 19:00 Didier Drogba. Mynd/AFP
Fílabeinsströndin og Búrkína Fasó fögnuðu sigri í dag í fyrri leikjunum sínum í umspili Afríkuþjóða um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári en eru engu að síður í ólíkri stöðu. Fílabeinsströndin vann þriggja marka sigur en Búrkína Fasó fékk á sig tvö mörk á heimavelli á móti Alsír.Fílabeinsströndin er með annan fótinn á HM 2014 eftir 3-0 heimasigur á Senegal. Það lið sem hefur betur í tveimur leikjum, heima og að heiman, tryggir sér farseðilinn til Brasilíu. Didier Drogba skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu strax á fimmtu mínútu leiksins og staðan var orðin 2-0 á 14. mínútu eftir að Senegalar skoruðu sjálfsmark. Salomon Kalou, fyrrum leikmaður Chelsea sem spilar núna með Lille, skoraði þriðja markið á 49. mínútu. Lærisveinar Alain Giresse í Senegal þurfa því að vinna upp þriggja marka forskot í seinni leiknum sem fer fram í Senegal eftir viku.Búrkína Fasó vann 3-2 sigur á Alsír í fyrri leik liðanna sem fór fram í Ouagadougou í Búrkína Fasó í kvöld. Aristide Bancém, leikmaður Fortuna Düsseldorf, skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu aðeins fjórum mínútum fyrir leikslok. Búrkína Fasó hefur aldrei komist á HM en komst alla leið í úrslitaleikinn á Afríkumótinu fyrr á þessu ári. Alsír var með á HM í Suður-Afríku 2010. Jonathan Pitroipa og Djakaridja Koné komu liði Búrkínu Fasó tvisvar yfir en Sofiane Feghouli og Carl Medjani jöfnuðu í tvígang. Mörkin þeirra gæti reynst afar dýrmæt í seinni leiknum í Alsír.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti „Ég elska peninga“ Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira