Maður finnur bara til svo mikillar reiði Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 23. september 2013 14:46 Yavuz var kasólétt þegar hún hitti Bill Clinton, að sögn Þóru Arnórsdóttur.
Að minnsta kosti 62 eru látnir eftir gíslatökuna í Kenía, en liðsmenn skæruliðahreyfingarinnar Al Shabab réðust inn í verslanamiðstöð í Naíróbí á laugardag. Meðal hinna látnu voru þau Elif Yavuz og Ross Langdon, verðandi foreldrar sem voru á leið í mæðraskoðun í verslanamiðstöðinni, en Yavuz var komin átta og hálfan mánuð á leið með sitt fyrsta barn þegar hún lést. Þóra Arnórsdóttir var bekkjarsystir Yavuz í Johns Hopkins-háskóla en þær lærðu saman þróunarhagfræði og alþjóðastjórnmál á árunum 2002 til 2004. Yavuz kom frá Hollandi og var 33 ára þegar hún lést.Yavuz og Langdon voru á leið í mæðraskoðun í verslanamiðstöðinni þegar skæruliðarnir hófu skothríð.„Mörg bekkjarsystkini mín starfa við erfiðar aðstæður um allan heim en Yavuz var ekki á átakasvæði,“ segir Þóra. „Þetta var því hræðileg tilviljun að hún skyldi hafa verið þarna og maður bjóst ekki við slíkum fréttum.“ Bekkjarsysturnar fylgdust hvor með annarri í gegnum samfélagsmiðla eftir skólagönguna og segir Þóra Yavuz hafa verið mikinn töffara. „Hún var algjör nagli og búin að vinna fyrir Clinton-stofnunina og Bill & Melinda-stofnunina, hafði starfað mikið í Afríku, og var að klára doktor frá Harvard í lýðheilsufræði. Hún var til dæmis kasólétt þegar hún tók í höndina á Clinton. Alveg brilljant manneskja.“ Þóra er slegin yfir fréttunum frá Naíróbí. „Maður finnur bara til svo mikillar reiði. En þetta minnir mann á að það er ekki þannig að þó hlutirnir gerist í útlöndum að þá komi þeir manni ekki við.“
Mest lesið „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Erlent Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn Innlent Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Fleiri fréttir Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Sjá meira