Fótbolti

Katrín Ómarsdóttir og félagar í Liverpool með fínan sigur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Katrín Ómarsdóttir í leik með Liverpool
Katrín Ómarsdóttir í leik með Liverpool Mynd / getty images
Katrín Ómarsdóttir og félagar í Liverpool unnu fínan sigur, 2-0, á neðsta liði deildarinnar Doncaster í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Katrín lék allan leikinn og stóð sig virkilega vel en Liverpool er í efsta sæti deildarinnar með 30 stig.

Arsenal kemur þar á eftir í öðru sæti með 25 stig en á samt sem áður tvö leiki til góða á Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×