Fótbolti

Jóhann Laxdal og Kristinn Jónsson halda sæti sínu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mynd/Valli
Lars Lagerbäck tilkynnti í dag landsliðshóp sinn fyrir leikina gegn Sviss og Albaníu í undankeppni HM 2014.

Hjálmar Jónsson, leikmaður IFK Gautaborgar, á von á barni og gefur því ekki kost á sér í leikina. Þá á Rúrik Gíslason við meiðsli að stríða á hönd og getur ekki spilað.

Bakverðirnir Jóhann Laxdal og Kristinn Jónsson halda sæti sínu í liðinu. Þeir voru valdir fyrir æfingaleikinn gegn Færeyjum en Lagerbäck hefur viðurkennt að meiri samkeppni sé þörf í vörn íslenska liðsins.

Alfreð Finnbogason er í hópnum þrátt fyrir meiðsli á tá. Lagerbäck segir ólíklegt að Alfreð leiki með gegn Sviss en útilokar það þó ekki.

Ísland sækir Sviss heim í Bern föstudaginn 6. september. Þriðjudaginn 10. september koma Albanir í heimsókn á Laugardalsvöll.

Vísir er með beina textalýsingu frá blaðamannafundinum sem fram fer á Hótel Nordica. Lýsinguna má finna á Twitter-formi hér að neðan.

Hópurinn

Markverðir

Gunnleifur Gunnleifsson, Breiðabliki

Hannes Þór Halldórsson, KR

Ögmundur Kristinsson, Fram

Varnarmenn

Birkir Már Sævarsson, Brann

Ragnar Sigurðsson, FCK

Kári Árnason, Rotherham

Sölvi Geir Ottesen, FCK

Ari Freyr Skúlason, OB

Hallgrímur Jónsson, SönderjyskE

Kristinn Jónsson, Breiðabliki

Jóhann Laxdal, Stjörnunni

Miðjumenn

Emil Hallfreðsson, Verona

Aron Einar Gunnarsson, Cardiff

Helgi Valur Daníelsson, Belenenses

Jóhann Berg Guðmundsson, AZ Alkmaar

Birkir Bjarnason, Pescara

Ólafur Ingi Skúlason, Zulte Waregem

Arnór Smárason, Helsingborg

Gylfi Þór Sigurðsson, Tottenham

Sóknarmenn

Eiður Smári Guðjohnsen, Club Brugge

Gunnar Heiðar Þorvaldsson Koynaspor

Kolbeinn Sigþórsson, Ajax

Alfreð Finnbogason, Heerenveen








Fleiri fréttir

Sjá meira


×