Innlent

Jóhannes Páll: Tvö og hálft ár fyrir kynferðisbrot

Kristján Hjálmarsson skrifar
Jóhannes Páll Sigurðsson er 45 ára en hét áður Jóhann Sigurðarson.
Jóhannes Páll Sigurðsson er 45 ára en hét áður Jóhann Sigurðarson.
Jóhannes Páll Sigurðsson var rétt í þessu dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi Reykjaness fyrir kynferðisbrot.

Jóhannes Páll játaði að hafa brotið sér leið inn á þrjú heimili fyrr í sumar og í tveimur tilvikum haft uppi kynferðislega tilburði við ókunnugt kvenfólk. Þá reyndi hann að brjótast inn á tvö heimili til viðbótar.

Jóhannes, sem áður hét Jóhann Sigurðarson, er 45 ára og hefur áður hlotið dóma fyrir sambærileg, en grófari, brot.

Hann var handtekinn aftur um miðjan júní vegna málanna sem hann var nú dæmdur fyrir og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Málin sem um ræðir eru fimm talsins og áttu sér mestmegnis stað á sama sólarhringnum í júní.

Það grófasta var þegar hann braust inn á heimili hjóna, afklæddist og fór nakinn inn í sturtu til konunnar, króaði hana af upp við vegg og nuddaði sér utan í hana. Maður hennar var þá heima. Í ákærunni er þetta talið varða við hegningarlagaákvæði um brot gegn blygðunarsemi.

Í öðru tilviki var hann kominn á rúmgaflinn hjá sautján ára unglingsstúlku og byrjaður að strjúka á henni handarbakið þegar foreldrar stúlkunnar urðu hans varir og ráku hann á dyr. Maðurinn gekkst við því að strokurnar hefðu haft kynferðislegan tilgang og var hann ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn stúlkunni.

Í þriðja skiptið var honum vísað út úr húsi þar sem hann var kominn snuðrandi inn í barnaherbergi, og í tvö skipti til viðbótar reyndi hann að ryðja sér leið inn á ókunnug heimili en húsráðendur, kona í öðru tilvikinu og ung stúlka í öðru, gátu haldið honum úti með því að leggjast á hurðina.

Jóhannes játaði sem áður segir öll brotin sem honum voru gefin að sök, þrjú húsbrot, tvær tilraunir til húsbrots, blygðunarsemisbrot og kynferðislega áreitni. Hann sagðist hins vegar hafa verið í annarlegu ástandi og ekkert muna eftir atvikunum.

Brotin voru framin örfáum dögum eftir að hann hafði staðist skilorð reynslulausnar fyrri dóma, sem meðal annars fól í sér að hann mætti ekki neyta áfengis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×