Tahiti tapaði með stæl 17. júní 2013 20:51 Leikmenn Tahiti fögnuðu marki sínu með stæl. Þeir fóru að róa.
Áhugamennirnir frá Tahiti þreyttu í kvöld frumraun sína á stórmóti í knattspyrnu er þeir mættu Nígeríu í Álfukeppninni. 107 sæti skilja liðin að á FIFA-listanum og því var búist við afar ójöfnum leik sem varð raunin. Lokatölur 6-1 fyrir Nígeríu. Lið Tahiti stóð sig þó betur en margur þorði að vona en liðið gaf allt of klaufaleg mörk. Allt varð þó vitlaust á vellinum er Jonathan Tehau skoraði fyrir Tahiti. Tehau skoraði síðan sjálfsmark skömmu síðar. Fyrsta mark leiksins kom eftir rúmar fjórar mínútur. Það var afar slysalegt. Skot fór af tveimur varnarmönnum Tahiti og í markið. Það mark gaf tóninn fyrir það sem koma skildi en gríðarlegur munur var á styrkleika liðanna. Nnamdi Oduamadi skoraði þrennu fyrir Nígeríu í kvöld en lið Nígeríu þótti ekkert sérstakt þrátt fyrir sigurinn. Tahiti er í 138. sæti á FIFA-listanum og allir leikmenn liðsins eru áhugamenn. Í liðinu eru íþróttakennarar og endurskoðendur. Níu leikmenn í hópnum eru síðan atvinnulausir. 180 þúsund manns búa í landinu. Það er þó einn atvinnumaður í liðinu, Maram Vahirua, en hann spilar með gríska liðinu Panathinaikos. Reynsla hans hjálpaði liðinu lítið í kvöld. Í byrjunarliði kvöldsins voru fimm leikmenn úr sömu fjölskyldu, þrír atvinnulausir, tveir sem vinna í verksmiðju og markvörðurinn starfar sem bílstjóri.
Fótbolti Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Fleiri fréttir Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Lygilegur viðsnúningur Argentínu Portúgalir búnir að finna eftirmann Martínez Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands