Bebe: Ég skildi aldrei hvað Ferguson sagði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. apríl 2013 23:30 Nordic Photos / AFP
Portúgalinn Bebe, leikmaður Manchester United, var í athyglisverðu viðtali hjá dagblaði í heimalandinu í dag. Alex Ferguson, stjóri United, kom mörgum á óvart þegar hann keypti Bebe árið 2010 frá Vitoria de Guimaraes. Bebe var nánast óþekktur á þeim tíma en Ferguson viðurkenndi svo að hafa aldrei séð hann spila. Bebe hefur spilað alls sjö leiki með aðalliði United og skoraði í þeim tvö mörk. Hann var í láni hjá Besiktas í Tyrklandi á síðasta tímabili en missti af stórum hluta þess eftir að hafa slitið krossband í hné. Hann spilaði ekkert með United fyrir áramót og spilar nú sem lánsmaður hjá Rio Ave í Portúgal. „Ég tók Manchester United aldrei alvarlega og skildi aldrei orð sem Alex Ferguson sagði. Ég hugsaði með mér að ég væri kominn hingað, væri að standa mig vel og þyrfti ekki að leggja hart að mér á hverjum degi. Það var mér að kenna,“ er haft eftir Bebe. „Ég vil fara til baka og það bendir allt til þess. En ef ég fæ ekki að spila vil ég frekar fara þangað þar sem ég fæ að spila reglulega. En ég ræði reglulega við þjálfarana og þeir vilja fylgjast með mér. Það gefur mér von.“ Hann segir að Ferguson komi vel fram við sig eins og aðra. Hann gagnrýni leikmenn til að hjálpa þeim. „Hann gerir það reglulega með Nani. Hr. Ferguson gagnrýnir hann, líklega vegna þess að honum finnst að hann ætti að geta spilað af sömu getu og Cristiano Ronaldo,“ sagði hann og bætti svo við athyglisverðri sögu um sjálfan sig. „Alex Ferguson bað mig um að láta klippa mig. Ég gerði það næsta dag og mætti honum svo margoft. Hann þekkti mig ekki.“
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Fleiri fréttir Spánn - Belgía | Hverjir ætla að vaða í Frakka? Sadio Mané hættur í landsliðinu en vill vera í kringum liðið áfram Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Valur - Stjarnan | Taka Stjörnukonur þátt í titilbaráttunni? Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Tekinn við Portúgal og gæti stýrt Ronaldo á nýjan leik Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Manchester City kaupir efnilegan markvörð Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks „Leikmenn skora mörk en liðið tekur sigurinn“ Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Wolfsburg með nýjustu fréttir af Eriksen Uppgjörið: FH - Þróttur R. 7-3 | Ída Marín kom FH á toppinn með fimm mörkum Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga María að gera Þóri að afa Sjá meira