Fótbolti

Stefán samdi við Leuven á ný

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán í leik með íslenska landsliðinu.
Stefán í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / Getty Images
Stefán Gíslason verður áfram í herbúðum belgíska úrvalsdeildarfélagsins Leuven en það var tilkynnt á heimasíðu þess í gær.

Stefán kom til Leuven í janúar í fyrra og hefur þótt standa sig vel. Hann gerir nú eins árs samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Hann hefur reyndar misst af síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla en er byrjaður að æfa á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×