Aðgát skal höfð í tannhirðu 4. mars 2013 16:00 Embætti landlæknis sendir hér frá sér mikilvægar ráðleggingar um mikilvægi góðarar tannhirðu ung- og smábarna sem eru á brjósti. Mynd/Getty
Í liðinni viku birtist umdeild grein um mögulegar tannskemmdir af völdum móðurmjólkur á heilsusíðum Fólks og hér á Vísi. Í kjölfarið vill Embætti landlæknis koma á framfæri tímabærum ráðleggingum til foreldra ung- og smábarna: Markmið greinarinnar, sem bar fyrirsögnina "Móðurmjólk getur skemmt tennur“, var fyrst og fremst að beina athygli að nauðsyn þess að huga enn betur að tannvernd ungra barna, en alls ekki að koma af stað neikvæðri umræðu um brjóstagjöf. Því miður voru rangfærslur í greininni og skilaboðin óskýr og því hefur Embætti landlæknis tekið saman ráðleggingar um brjóstagjöf og tannvernd og hvetur til áframhaldandi umræðu um brýnt málefni. Ráðleggingar Embættis landlæknis um brjóstagjöf og tannvernd - Að gefnu tilefni vill Embætti landlæknis vekja athygli á að ráðleggingar embættisins um brjóstagjöf hafa ekki breyst á síðustu árum. Móðurmjólkin er besta næring sem völ er á fyrir ungbarn og brjóstamjólk eingöngu fyrstu sex mánuðina inniheldur öll næringarefni sem barn þarf á að halda sér til vaxtar og þroska. Mælt er með að brjóstamjólk sé hluti fæðunnar allt fyrsta árið og jafnvel lengur. Börnum á þurrmjólk má smám saman gefa stoðmjólk í staðinn frá sex mánaða aldri. - Í kjölfar tanntöku er æskilegt að draga úr næturgjöfum, sérstaklega hjá börnum sem nærast á þurrmjólk úr pela, og bjóða þess í stað vatn á nóttunni. Næturgjafir eru brjóstabarni mikilvægar, sérstaklega fyrstu sex mánuðina og jafnvel lengur. Hafa ber í huga að ef barn sofnar út frá brjóstagjöf á kvöldin er mikilvægt að bursta tennurnar vel áður. Þar sem skán getur myndast á tönnum við næturgjafir er mælt með tannburstun strax að morgni. - Börn sem eru komin með tennur og farin að borða kolvetni á daginn fá skán á tannyfirborð sem getur valdið tannskemmdum. Frá því fyrsta tönn er sýnileg þarf að bursta tennur tvisvar á dag með 0,1% flúortannkremi. Magn tannkrems samsvarar ¼ af nögl litlafingurs barns yngra en 3 ára. - Ekki er ráðlagt að gefa barni ávaxtasafa eða sætt te í pela, hvorki á nóttu né degi, því sykur skemmir tennurnar og ávaxtasýra eyðir tannglerungi. Gott er að venja 6 mánaða börn við stútkönnu og 12-18 mánaða börn af pela. - Brjóstamjólk hefur ekki glerungseyðandi áhrif og inniheldur efnasambönd sem geta dregið úr virkni baktería. Hafa ber í huga að munnvatnsframleiðsla er í lágmarki að nóttu til sem eykur hættu á tannskemmdum ef aðgát er ekki höfð í tannhirðu. Geir Gunnlaugsson, landlæknir Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir Hólmfríður Þorgeirsdóttir, næringarfræðingur
Tengdar fréttir Móðurmjólk getur skemmt tennur Ráðlagt er að draga úr næturgjöfum barna við átta til tólf mánaða aldur, samkvæmt ráðleggingum Embættis tannlæknis um tannvernd. Árlega eru allt að 200 smábörn, fimm ára og yngri, svæfð vegna alvarlegra tannskemmda af völdum sætra og súrra drykkja að næturlagi. 26. febrúar 2013 17:00 Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Sjá meira
Móðurmjólk getur skemmt tennur Ráðlagt er að draga úr næturgjöfum barna við átta til tólf mánaða aldur, samkvæmt ráðleggingum Embættis tannlæknis um tannvernd. Árlega eru allt að 200 smábörn, fimm ára og yngri, svæfð vegna alvarlegra tannskemmda af völdum sætra og súrra drykkja að næturlagi. 26. febrúar 2013 17:00