Lífið

Fékk flog á setti

Tískuspekúlantinn Kelly Osbourne fékk flog í gær er hún tók upp sjónvarpsþáttinn Fashion Police sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni E!

Kelly var flutt á sjúkrahúsi í Los Angeles með flýti.

Kelly á setti Fashion Police.
Kelly sat í stólnum sínum í settinu og sneri sér síðan að Melissu Rivers og sagði að henni liði ekki vel. Því næst datt hún úr stólnum og byrjaði að skjálfa. Flogið stóð yfir í þrjátíu sekúndur en sem betur fer var sjúkraflutningamaður í salnum sem kunni réttu handtökin.

Góðan bata, Kelly!
Kelly ku vera á batavegi og líðan hennar stöðug.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.