Innlent

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir tollara

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tollverði, en sá var handtekinn þann 20. febrúar síðastliðinn vegna aðildar að smyglmáli.

Níu einstaklingar hafa áður verið handteknir og átta hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnafundar þann 21. janúar, en tollgæslan fann rúmlega tuttugu kíló af fíkniefnum í tollpóstinum á Stórhöfða í Reykjavík.

Gæsluvarðhaldsúrskurður tollvarðarins nær til tveggja vikna. Sex einstaklingar sæta því gæsluvarðhaldi nú í þágu rannsóknar málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×