Innlent

Ungar stúlkur björguðu tíu ára vinkonu sinni úr vök

Tvær ungar stúlkur björguðu tíu ára vinkonu sinni í gærkvöldi, eftir að þunnur ís á tjörn, sem hafði myndast af leysingavatni í Naustahverfi á Akureyri, brast undan henni og hún sökk ofan í vökina.

Stúlkurnar brugðust skjótt við og náðu henni upp heilli á húfi. Lögreglu var tilkynnt um málið, sem hafði samband við bæjarstarfsmenn, sem ætluðu að grípa til öryggisráðstafana við vökina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×