Lífið

Hommasenurnar lítið mál

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Leikarinn geðþekki er virkur í jafnréttisbaráttunni.
Leikarinn geðþekki er virkur í jafnréttisbaráttunni. Mynd/AP
Breski leikarinn Daniel Radcliffe, sem flestir þekkja úr kvikmyndunum um galdradrenginn Harry Potter, skilur ómögulega viðbrögð áhorfenda við kynlífssenum nýjustu myndar hans, Kill Your Darlings.

„Ég skil ekki hvers vegna kynlíf samkynhneigðra þykir meira sjokkerandi í kvikmynd en kynlíf gagnkynhneigðra," segir Radcliffe, en hann hefur verið ötull talsmaður jafnréttisbaráttu samkynhneigðra og transfólks.

Í myndinni leikur Radcliffe ljóðskáldið alræmda Allen Ginsberg, og inniheldur myndin djarfar senur sem sýna listamanninn njóta ásta með öðrum karlmönnum.

Eftir frumsýningu myndarinnar hrúguðust yfir hann spurningar út í kynlífssenurnar, en leikarinn segir tökur þeirra hafa verið lítið mál, og bendir á að árið 2008 lék hann í leikritinu Equus, þar sem persóna hans hneigðist kynferðislega til hesta, og voru fáar athugasemdir gerðar við það






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.