Sextán flugfélög fljúga til landsins í sumar 7. febrúar 2013 14:30
Áætlanir flugrekenda á komandi sumri benda til þess að áfram verði veruleg aukning á umsvifum á Keflavíkurflugvelli eins og undanfarin ár. Gert er ráð fyrir um 10% auknum umsvifum miðað við fyrra ár en alls munu 16 flugfélög halda uppi ferðum til landsins í sumar. Í tilkynningu frá Isavia segir að nýja árið fari vel af stað og hafi farþegafjöldinn í janúar aukist um 21,6% samanborði við sama mánuð í fyrra. Það sé vegna þess að nú séu sex flugfélög með vetraráætlun á vellinum, en þau hafi verið þrjú í fyrra. „Á komandi sumri er ráðgert að afgreiða 32 farþegaflug (komur og brottfarir) um háannatíma að morgni og síðdegis flesta daga vikunnar en allmargar flugvélar eru jafnframt afgreiddar um hádegisbil og miðnætti. Þá er búist við að a.m.k. 15.500 farþegar fari um Flugstöð Leifs Eiríkssonar daglega þegar mest lætur í júní, júlí og ágúst," segir í tilkynningunni. „Ráðist verður í nokkrar skipulagsbreytingar og endurbætur á flugstöðinni til þess að anna þessari miklu umferð og auka þægindi flugfarþega. Í norðurbyggingu verður tekið í notkun nýtt brottfararhlið fyrir farþega sem fluttir verða með rútum til og frá flugvélum og umtalsverðar breytingar verða einnig gerðar í suðurbyggingu, m.a. á svæðum sem áður voru ekki hluti af almennu farþegarúmi. Sjálfsinnritunarstöðvum verður fjölgað enn til muna, en þær hafa sannað gildi sitt og flýta afgreiðslu við innritun, og tekin verður upp sjálfvirk farþegaafgreiðsla við tvö brottfararhlið til hægðarauka og til þess að draga úr biðraðamyndun. Þá er einnig unnið að uppsetningu á þráðlausu netkerfi sem nær til allra farþegasvæða í flugstöðinni og verður notkun þess gjaldfrí."Eftirfarandi flugfélög munu annast áætlunar- og leiguflug á Keflavíkurflugvelli í sumar:Air BerlinAir GreenlandAustrian AirlinesAvion Express (WOW Air)Delta Air LinesDeutsche LufthansaeasyJetEdelweiss AirGermanwingsIcelandairNiki LuftfahrtNorwegian Air ShuttlePrimera AirScandinavian Airlines SystemThomas Cook AirlinesTransavia.com
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira