Fótbolti

Kolbeinn hafði betur í Íslendingaslag

Kolbeinn og Siem De Jong fagna marki De Jong
Kolbeinn og Siem De Jong fagna marki De Jong Mynd/Gettyimages
Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax unnu öruggan 3-0 sigur á NEC Nijmegen í hollensku úrvalsdeildinni í dag. Guðlaugur Victor Pálsson var að vanda í byrjunarliði NEC og spilaði allan leikinn.

Kolbeinn lagði annað mark Ajax þegar Nicolai Boilesen potaði boltanum yfir marklínuna eftir sendingu Kolbeins. Kolbeinn var síðar óheppinn að skora ekki í leiknum en hann brenndi af fyrir framan opnu marki rétt fyrir hálfleik. Kolbeini var að lokum skipt útaf eftir rúmlega klukkustund og fékk hann því mikilvæga hvíld fyrir leik Íslenska landsliðsins gegn Króatíu á föstudaginn.

Sigurinn fleytir Ajax upp í annað sæti hollensku úrvalsdeildarinnar með 22 stig, jafnir Groningen og AZ Alkmaar sem eiga leik til góða og geta komist upp fyrir topplið Vitesse í dag. NEC situr aftur á móti í botnsæti deildarinnar með níu stig, fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×