Þrjár eftirminnilegar innkomur Eiðs Smára á árinu 2013 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. september 2013 22:45 Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Daníel
Eiður Smári Guðjohnsen átti enn eina flotta innkomuna í íslenska landsliðið þegar hann kom inn á sem varamaður í hálfleik í 4-4 jafnteflinu á móti Sviss í Bern í gær. Helgi Valur Daníelsson fann sig engan vegin á miðju íslenska liðsins og gerði sig sekan um ótrúlegar margar lélegar sendingar. Sóknarleikur íslenska liðsins náði sér því ekki á strik. Það var allt annað að sjá Eið Smára koma inn í sömu og koma sóknarleiknum í gírinn. þetta er í þriðja sinn sem Eiður Smári kemur inn á sem varamaður og breytir leik íslenska liðsins. Eiður Smári var í byrjunarliðinu í fyrsta leik ársins þegar Ísland tapaði 0-2 í vináttulandsleik á móti Rússum í febrúar en síðan þá hefur Eiður ekki fengið að byrja. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þrjár magnaðar innkomur hjá Eiði Smára í landsleikjum á árinu 2013:Slóvenía - Ísland 1-2 (22. mars 2013, undankeppni HM)Eiður Smári kemur inn á fyrir Emil Hallfreðsson á 76. mínútu þegar staðan er 1-1. Hann leggur upp sigurmark Gylfa Þórs Sigurðssonar aðeins tveimur mínútum síðar. Ísland - Færeyjar 1-0 (14. ágúst 2013, vináttuleikur) Eiður Smári kemur inn á fyrir Emil Hallfreðsson á 46. mínútu þegar staðan er 0-0. Hann leggur upp sigurmark íslenska liðsins þar sem Birkir Bjarnason skaut í Kolbein Sigþórsson. Eiður Smári var frábær í leiknum og íslenska liðið átti að skora miklu fleiri mörk.Sviss - Ísland 4-4 (6. september, undankeppni HM) Eiður Smári kemur inn á fyrir Helga Val Daníelsson á 46. mínútu þegar staðan er 3-1 fyrir Sviss. Íslenska liðið lendir 1-4 undir en tekur síðan yfir leikinn síðasta hálftímann og tryggir sér jafntefli með þremur mörkum.Samantekt: Íslenska liðið hefur unnið þær 114 mínútur sem Eður Smári hefur spilað í þessum þremur leikjum með markatölunni 5-1. Eiður Smári kom einnig inn á móti Slóveníu í 2-4 tapi á Laugardalsvellinum þar sem hann þurfti að leysa af fyrirliðanna Aron Einar Gunnarsson sem fór meiddur af velli. Þær 38 mínútur töpuðust 0-2.Mynd/Daníel
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn „Eyðileggur íþróttina“ Sport Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Fleiri fréttir Ekki rétt að hann hafi „risið upp frá dauðum“ „Ánægður með það hvernig strákarnir héldu áfram að trúa“ Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Stefndi í endurkomu en Siggi Raggi og lærisveinar eru úr leik Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Gísli Gottskálk meiddist illa á æfingu fyrir fyrsta leikinn Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Elvis kominn í Bítlabæinn Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Kjartan orðinn leikmaður Brann Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Mark 17 ára trölls, rassinn úti og bikar á loft Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Þoka í Færeyjum veldur vandræðum „Ég er með stærri drauma“ Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Messi kom til baka við mikinn fögnuð áhorfenda Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Sjá meira