Verjendur segja sig frá Al-Thani málinu - segja málsmeðferð óeðlilega 8. apríl 2013 14:14 Gestur Jónsson t.v. og Ragnar H. Hall. Þeir hafa sagt sig frá Al-Thani málinu svokallaða. Mynd Pjetur
Gestur Jónsson og Ragnar H. Hall hafa ákveðið að láta af störfum sem verjendur Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, og Ólafs Ólafssonar, eins af aðaleigendum Kaupþings. Ástæðan er sú að hæstaréttarlögmennirnir líti svo á að brotið hafi ítrekað verið á skjólstæðingum þeirra í Al-Thani málinu. Verjendurnir hafa þegar tilkynnt Héraðsdómi Reykjavíkur þetta með bréfi sem þeir sendu í dag. Í tilkynningu sem þeir afhentu blaðamönnum á Grand Hóteli fyrir stundu segir að steininn hafi tekið úr þegar Hæstiréttur Íslands úrskurðaði meðal annars síðasta fimmtudag að aðalmeðferð yrði ekki frestað eins og verjendur fóru fram á, heldur færi hún fram næstkomandi fimmtudag. Ragnar sagði á fundinum að lögmennirnir væru samt sem áður fullkomlega sannfærðir um sakleysi Sigurðar og Ólafs, en þeir vildu ekki, með þátttöku sinni, ljá málsmeðferðinni það yfirbragð að farið hefði verið eftir réttlátum reglum um málsmeðferð. Hér fyrir neðan má nálgast greinagerðir lögmannanna.
Tengdar fréttir Hörður Felix og Karl Axelsson verða áfram Hvorki Hörður Felix Harðarson, verjandi Hreiðars Más Sigurðssonar, né Karl Axelsson, verjandi Magnúsar Guðmundssonar, hafa ákveðið að setja sig frá al-Thani málinu. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem þeir Gestur, verjandi Sigurðar Einarssonar, og Ragnar, verjandi Ólafs Ólafssonar, héldu þegar þeir tilkynntu ákvörðun sína um að segja sig frá málinu. Ástæðuna segja þeir meðal annars vera þá að Hæstiréttur hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að fresta aðalmeðferð málsins, sem gert er ráð fyrir að hefjist á fimmtudaginn. 8. apríl 2013 15:54 Verjendur boða til blaðamannafundar vegna Al-Thani-málsins Verjendur Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings og Ólafs Ólafssonar, eins aðaleiganda bankans, hafa boðað til blaðamannafundar í dag. 8. apríl 2013 12:13 Saksóknari undrandi yfir ákvörðun verjenda "Ég er mjög undrandi,“ segir Björn Þorvaldsson saksóknari hjá sérstökum saksóknara vegna þeirrar ákvörðunar hæstaréttarlögmannana Gests Jónssonar og Ragnars Hall að segja sig frá al-Thani málinu. Þeir Gestur og Ragnar eru verjendur Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, og Ólafs Ólafssonar, eins aðaleiganda bankans. 8. apríl 2013 15:27 Sigurður Einarsson ekki óskað eftir nýjum verjanda Ólafur Ólafsson, sem hefur verið ákærður í Al-Thani málinu, hefur óskað eftir því að verða skipaður nýr verjandi eftir að Ragnar H. Hall sagði sig frá málinu í dag. Það hefur Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, ekki gert. Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar, segist þó búast við því að Sigurður óski eftir því að fá nýjan verjanda og að báðir haldi uppi vörnum. 8. apríl 2013 15:36 Viðbúið að héraðsdómur hafni ósk verjendanna Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður telur viðbúð að Héraðsdómur Reykjavíkur muni synja beiðni hæstaréttarlögmannanna Gests Jónssonar og Ragnars Hall um að fá að segja sig frá al-Thani málinu. Þeir Gestur og Ragnar, sem eru verjendur Sigurðar Einarssonar og Ólafs Ólafssonar, héldu blaðamannafund í dag þar sem þeir kynntu þessa ákvörðun sína. 8. apríl 2013 15:16 Mest lesið Skilinn eftir nær dauða en lífi á nærbuxum einum klæða Innlent Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Innlent 13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Innlent Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Erlent Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Innlent Metaðsókn og söfnunarmet slegið Innlent Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Innlent Steindór Örn endurkjörinn formaður Hallveigar Innlent Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Fleiri fréttir Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Skilinn eftir nær dauða en lífi á nærbuxum einum klæða Metaðsókn og söfnunarmet slegið 13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Steindór Örn endurkjörinn formaður Hallveigar Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Myndskeið af rallýslysi, sjálfstæð Úkraína og brennan á Bergþórshvoli Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Sjá meira
Hörður Felix og Karl Axelsson verða áfram Hvorki Hörður Felix Harðarson, verjandi Hreiðars Más Sigurðssonar, né Karl Axelsson, verjandi Magnúsar Guðmundssonar, hafa ákveðið að setja sig frá al-Thani málinu. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem þeir Gestur, verjandi Sigurðar Einarssonar, og Ragnar, verjandi Ólafs Ólafssonar, héldu þegar þeir tilkynntu ákvörðun sína um að segja sig frá málinu. Ástæðuna segja þeir meðal annars vera þá að Hæstiréttur hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að fresta aðalmeðferð málsins, sem gert er ráð fyrir að hefjist á fimmtudaginn. 8. apríl 2013 15:54
Verjendur boða til blaðamannafundar vegna Al-Thani-málsins Verjendur Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings og Ólafs Ólafssonar, eins aðaleiganda bankans, hafa boðað til blaðamannafundar í dag. 8. apríl 2013 12:13
Saksóknari undrandi yfir ákvörðun verjenda "Ég er mjög undrandi,“ segir Björn Þorvaldsson saksóknari hjá sérstökum saksóknara vegna þeirrar ákvörðunar hæstaréttarlögmannana Gests Jónssonar og Ragnars Hall að segja sig frá al-Thani málinu. Þeir Gestur og Ragnar eru verjendur Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, og Ólafs Ólafssonar, eins aðaleiganda bankans. 8. apríl 2013 15:27
Sigurður Einarsson ekki óskað eftir nýjum verjanda Ólafur Ólafsson, sem hefur verið ákærður í Al-Thani málinu, hefur óskað eftir því að verða skipaður nýr verjandi eftir að Ragnar H. Hall sagði sig frá málinu í dag. Það hefur Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, ekki gert. Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar, segist þó búast við því að Sigurður óski eftir því að fá nýjan verjanda og að báðir haldi uppi vörnum. 8. apríl 2013 15:36
Viðbúið að héraðsdómur hafni ósk verjendanna Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður telur viðbúð að Héraðsdómur Reykjavíkur muni synja beiðni hæstaréttarlögmannanna Gests Jónssonar og Ragnars Hall um að fá að segja sig frá al-Thani málinu. Þeir Gestur og Ragnar, sem eru verjendur Sigurðar Einarssonar og Ólafs Ólafssonar, héldu blaðamannafund í dag þar sem þeir kynntu þessa ákvörðun sína. 8. apríl 2013 15:16
13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Innlent
13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Innlent