Innlent

Ræddu endurskoðaðan kjarasamning

Magnús L. skrifar
Fulltrúar aðila vinnumarkaðarins funduðu á skrifstofu ASÍ í Guðrúnartúni í gær.Fréttablaðið/Pjetur
Fulltrúar aðila vinnumarkaðarins funduðu á skrifstofu ASÍ í Guðrúnartúni í gær.Fréttablaðið/Pjetur
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Samtök atvinnulífsins (SA) hófu í gær viðræður um endurskoðun gildandi kjarasamninga. Fulltrúar aðila vinnumarkaðarins funduðu í höfuðstöðvum ASÍ í Guðrúnartúni í gærmorgun en ASÍ hefur sett fram kröfu um hærri launahækkanir en gert er ráð fyrir í samningunum.

Samkvæmt kjarasamningum munu laun á vinnumarkaði hækka um 3,25% um næstu mánaðamót. Aðilar vinnumarkaðarins hafa hins vegar hvorir um sig rétt á því að krefjast endurskoðunar á samningnum en ákvörðun um slíkt þarf að liggja fyrir í síðasta lagi 21. janúar næstkomandi.

„Við vorum einfaldlega að ræða þá stöðu sem upp er komin. Forsendur kjarasamningsins hafa ekki allar haldið,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri ASÍ, og bætir við: „Þessi forsendubrestur bitnar á báðum og við erum nú að ræða hvernig sé best að bregðast við.“

Vilhjálmur segir að SA muni ekki hafa frumkvæði að því að opna kjarasamninginn en telji jafnframt að fremur væri rétt að lækka umsamdar launahækkanir en að hækka þær. „Við teljum að það sé best til lengri tíma að vinna bug á verðbólgunni og þú gerir það ekki með því að búa til meiri verðbólgu,“ segir Vilhjálmur.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir liggja fyrir að ASÍ hafi sett fram kröfu um hærri launahækkanir þar sem verðbólga hafi reynst hærri en forsendur kjarasamningsins gerðu ráð fyrir. Hann vill hins vegar ekki tjá sig um hvað fór fram á fundinum í gær fyrr en að loknum formannafundi ASÍ á mánudag.

Núgildandi kjarasamningur var undirritaður í maí 2011. Byggði hann á nokkrum forsendum sem ekki hafa staðist en þannig var gert ráð fyrir 2,5% verðbólgu nú um áramótin og því að gengisvísitala krónunnar væri 190 stig. Verðbólga mælist hins vegar 4,2% og þá er gengisvísitalan rúm 231,5 stig. Í samningum var einnig sú forsenda að kaupmáttur hefði aukist á árinu 2012 og sú forsenda hefur staðist þótt kaupmáttaraukningin hafi orðið minni en vonast var eftir.

Seðlabanki Íslands hefur lýst yfir áhyggjum af því að endurskoðun kjarasamninga myndi hafa í för með sér meiri launahækkanir en þegar hefur verið samið um. Telur Seðlabankinn að frekari launahækkanir myndi leiða út í verðlag og hefur bankinn því lýst því yfir að þörf gæti verið á vaxtahækkunum, verði laun hækkuð frekar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×