Fagnar áliti sem segir verðtrygginguna ganga í berhögg við tilskipun ESB Helga Arnardóttir skrifar 18. febrúar 2013 19:13
Talsmaður neytenda fagnar áliti sérfræðings ESB sem telur lagaaákvæði um verðtryggingu í íslenskum lögum ganga í berhögg við tilskipun Evrópusambandsins um neytendalán. Hann hallast að því að tilskipunin, eins og hún hefur verið innleidd í íslensk lög eigi einnig við fasteignaveðlán en ekki eingöngu smærri lán. Brýnt sé að löggjafinn taki á málinu og láti neytendur njóta vafans. Prófessor í Evrópurétti við HÍ sem vinnur að rannsókn um lögmæti verðtryggingar í vaxtalögum óskaði nýlega eftir áliti framkvæmdastjórnar ESB um hvort verðtryggingarákvæði í 13.gr. laga um vexti og verðtryggingu samrýmdust tilskipunum ESB. Álit sérfræðings Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er að lagaákvæði um verðtryggingu í íslenskum lögum gengur í berhögg við tilskipun Evrópusambandssins um neytendalán. En þar með er ekki öll sagan sögð því Áslaug Árnadóttir lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti telur þessa tilskipun einungis eiga við í málum um smærri lán, til dæmis bílalán en ekki fasteignaveðlán. Á þessari stundu sé ekki til tilskipun sem taki til fasteignaveðlána í Evrópurétti. Gísli Tryggvason talsmaður neytenda er hins vegar á öðru máli og segir álit sérfræðings ESB vera stórtíðindi fyrir neytendur. „Ég er búin að halda því fram að verðtrygging eins og hún er framkvæmd á Íslandi, stangist á við Evrópurétt og þarna er komið álit sem staðfestir það." Þetta sé engu að síður álitamál lögfræðinga. „Ég hallast að því að húsnæðislán falli undir þetta álit vegna þess að Evrópurétturinn á að gilda framar og er nýlegri löggjöf heldur en sú sem verðtryggingin hvílir á." Þannig að þú telur að þeir skuldarar sem nú eru að reyna að lögmæti verðtryggingarinnar hnekkt fyrir dómstólum geti stuðst við þessa tilskipun? „Já ég tel að það sé hægt og hefði betur verið gert mun fyrr og sumir eru að gera það," svarar Gísli. Hann telur brýnt að löggjafinn taki á þessu máli frekar en dómstólar. „Mér finnst að löggjafinn eigi að taka á þessu núna, taka stöðu með neytendum og láta þá njóta vafans," segir Gísli.
Mest lesið Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Innlent Ísraelsmenn undirbúi árás á skútuna með Gretu Thunberg um borð Erlent Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Erlent Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Erlent Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Erlent Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Innlent Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Innlent „Ertu kannski Íslendingur?“ Lífið Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Innlent Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti Erlent Fleiri fréttir Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns Sjá meira